Förgun bifreiða
Fáðu greitt fyrir ónýta bílinn og Hringrás sér um ferlið við að farga honum frá upphafi til enda.
„Það er á ábyrgð eigenda ökutækis að fjarlægja alla persónulega muni og önnur verðmæti úr ökutæki áður en afskráningarbeiðni er send inn og ökutæki er sótt.“
HEFUR BÍLLINN ÞJÓNAÐ SÍNUM TILGANGI?
Fáðu greitt fyrir ónýta bílinn og Hringrás sér um ferlið við að farga honum frá upphafi til enda.
HJÁ OKKUR ER ÞETTA EINFALT
Fyrir þá, sem þess óska, er nú hægt að undirrita skilavottorð með rafrænum hætti og losa sig við ónýtan bíl án þess að fara á marga staði. Það sparar bæði tíma og fyrirhöfn.
Afskráning / Rafrænt skilavottorð
Við sækjum / móttökum
Þú færð greitt skilagjald
Á öruggu vefsvæði setur þú inn þínar reikningsupplýsingar og færð greitt skilagjald frá Samgöngustofu.
RAFRÆNT SKILAVOTTORÐ
Með því að nýta sér rafræna afskráningu einföldum við áður flóknara ferli þar sem eigandi þurfti að vera á staðnum þegar bíllinn var sóttur, afhenda pappíra og koma númeraplötum á rétta staði.
Með nýju fyrirkomulagi er þetta auðveldara.
- Innskráning á öruggu vefsvæði er með rafrænum skilríkjum
- Viðkomandi þarf að vera skráður eigandi bílsins
- Bíllinn verður afskráður af götunni
- Bílnúmer eru skilin eftir á bílnum, ef þau eru ekki þegar innlögð
- Þú færð greitt skilagjald inn á reikninginn þinn frá samgöngustofu
HVAÐ VERÐUR UM BÍLINN?
Eftir að skilavottorð hefur verið fyllt út hefst ferlið hjá Hringrás við að fjarlægja spilliefni og pressa.

Móttaka bíla í Hringrás
Hringrás sendir flutningsaðila til að sækja til þín bílinn eða þú kemur með hann til okkar á afgreiðslustaði í Reykjavík eða á Akureyri.

Spilliefni fjarlægð
Dekk, rafgeymar, vökvar, olíur og eldsneyti eru fjarlægð úr bílnum og send til endurvinnslu eða förgunar samkvæmt ströngustu kröfum um umhverfisvernd.

Bíllinn pressaður
Bíllinn er pressaður í böggul sem sendur er erlendis til endurvinnslu. Allir málmar og plastefni eru endurnýtt eins og hægt er.
ENDURVINNSLA & UMHVERFIÐ
Á nútíma öld er endurvinnsla mikilvæg. Að loknu ferli hjá Hringrás fer pressaður bíll í útflutning þar sem efnin eru tætt niður, flokkuð og endurnýtt.
Samstarfsaðilar okkar í Evrópu sjá um að endurvinna alla málma og plastefni með bestu mögulegu tækni.
Endurvinnsluhlutfall efna úr bílum sem fargað er hjá Hringrás er með því hæsta sem gerist í heiminum.

SPURT OG SVARAÐ
Nei, Hringrás selur ekki varahluti úr bílum.
Eitt helsta spilliefni í bifreiðum eru rafgeymar. Þeir eru að stærstum hluta gerðir úr plasti (polypropylene) og blýi. Hulstrin eru notuð í framleiðslu á nýjum rafgeymum og blýið er endurunnið í nýjar blýplötur og aðra rafgeymahluta. Fullvinnsla á blýinu fer fram erlendis. Plast úr rafgeymum sem og annað plast sem hentar, er tætt niður í tætara og þvegið og að því búnu selt sem plastkurl til endurvinnslu.
Samstarfsaðilar okkar bjóða upp á frían flutning til förgunar á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Ef þú býrð utan þess svæðis hafðu þá samband og við finnum góða lausn með þér.
Best er að láta númeraplöturnar vera á bílnum eða leggja þær ofan á mælaborðið. Ef að númeraplöturnar hafa verið lagðar inn verða þær sjálfkrafa sendar í eyðingu. Ef að númeraplötur hafa glatast þarf að skrifa undir staðfestingu þess efnis og senda til Hringrásar.